HomeSkilmálar
Skilmálar
Privacy
- Heim
- Privacy
VIKFIT EHF
Kt: 680422-1760
Bjarkarholt 21 – 270 Mosfellsbær
vik@vikfit.is
Eftirfarandi skilmálar gilda um heimsókn þína á vefsíðuna og öll viðskipti sem þú kannt að gera um vefsíðuna, nú eða síðar.
Réttur til að hætta við pantanir
vikfit.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir án fyrirvara.
Vikfit áskilur sér rétt til að segja upp áskrift án endurgreiðslu ef samband milli kúnna og þjálfara gengur ekki sem skyldi.
Efni á heimasíðu og námskeiðum / Höfundaréttur
Allt efni á heimasíðu vikfit.is og allt efni á netnámskeiðum sem seljandi býður upp á er í eigu seljanda. Kaupanda er óheimilt að afrita efnið eða deila því áfram.
Einstaklingsaðgangur
Óheimilt er að deila vörum eða áskriftum með öðrum sem ekki hefur greitt fyrir aðgang að tiltekinni vöru eða þjónustu. Þú kaupir aðgang fyrir sjálfa(n) þig.
Greiðsluskylda kaupanda (iðkanda) í mánaðarlegri áskrift
Kaupandi sem skráir sig í mánaðarlega áskrift hjá vikfit.is skuldbindur sig til að greiða mánaðarlega (á 30 daga fresti) fyrir námskeið.
Greiðsluskylda kaupanda (iðkanda) þegar keypt er stakt námskeið
Kaupandi sem kaupir stakt námskeið (eða aðra vöru) greiðir fyrirfram. Ef um netnámskeið er að ræða er ekki hægt að fara fram á endurgreiðslu eftir að greiðsla hefur verið innt af hendi.
Endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur ekki rétt á endurgreiðslu eftir að búið er að greiða áskriftargjald eða stakt námskeiðsgjald, enda er alltaf greitt fyrirfram fyrir verðmæti sem kaupandi fær.
Endurgreiðsluréttur stofnast ekki ef þátttakandi hefur ekki nýtt sér vöruna eða þjónustuna sem keypt var.
Uppsögn á áskrift
Kaupandi getur ekki sagt upp áskrift að vöru eða þjónustu vikfit.is nema vegna óviðráðanlegra aðstæðna og þarf þá að hafa samband við þjónustuver.
Verð
Vinsamlegast athugið að verð geta breyst án fyrirvara.
Ef áskriftargjald (mánaðarlegar áskriftir) hækkar mun vikfit.is senda tilkynningu þar um og taka verðbreytingar þá gildi frá og með næstu mánaðarmótum.
Eigin ábyrgð
Athugaðu að kaupandi ber ábyrgð á framkvæmd og niðurstöðu af vörum eða þjónustu frá vikfit.is.
Kaupandi ber ábyrgð á eigin heilsu og verður að treysta sér til að framkvæma æfingar eða nýta aðra þjónustu sem hann fær hjá vikfit.is.
Við hvetjum kaupanda til að hlusta á eigin líkama og huga ávallt að eigin getu þegar tekin er ákvörðun um að kaupa og nýta sér þjónustu hjá vikfit.is.
Ef um meiðsli eða veikindi er að ræða hvetjum við iðkanda til að ráðfæra sig við sérfræðing áður en keypt er þjónusta hjá vikfit.is.
Með kaupum á vöru eða þjónustu hjá vikfit.is staðfestir kaupandi að hann beri þessa ábyrgð (á eigin áhættu).
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin.
Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög.
Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur vikfit.is á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.
Breytingar
vikfit.is áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum sínum.
Breytingarnar taka gildi þegar uppfærðir skilmálar hafa verið birtir hér á heimasíðunni.